08febrúar
Sælar stúlkur eigum við að segja að þessi síða officially dead eða eigum við að reyna að bjarga henni eitthvað með því að critisera fína og fræga fólkiið fyrir það hvað það er að segja og gera?
eða hvað!?!
I want your comment!!
03janúar
Nú eru hátíðin brátt um garð gengin og vonandi allir búinir að éta á sig gat...
Allir búnir að strengja þau klassísku nýársheit að byrja á fullu í ræktinni eftir allt átið, hætta að reykja, taka í nefið eða vörina missa ákv mörg kíló og þar fram eftir götunum...
Ég sjálf er búin að hafa það bara fínt yfir hátiðirnar og borða góðan mat... Strengdi að vísu engin áramótaheit heldur ákvað í staðinn að gera það sem ég gæti til þess að láta mér líða sem allra best :)
Nú styttist í að maður fari aftur suður og skólinn hefjist og geri ég þá varla mikið annað en læra og hlakka til þegar febrúar kemur og ég klára prófin... úff já!!... vonandi komið þið bara í heimsókn í feb eða mars stelpur mínar... það væri voða gaman að sjá ykkur þá ;)
Gleðilegt nýtt ár stúlkur og takk fyrir öll þau gömlu ;)
26nóvember
Sælar stúlkur mínar... umræður síðustu daga er mikið búnar að vera um lítil kríli og litla bumbubúa og þar sem það eru alltaf að koma fleiri og fleiri sem fallast undir þann hóp þá langaði mig til að varpa þessari spurningu fram...
Svona þar sem ég er ekki fyrir norðan til að spæjast og spurja þá kemur það bara hér...
Er einhver af ykkur ólétt!?!
Endilega give me a call
og aukið spennuna hja manni...haha...
Kveð að sinni
- Elfa Berglind
20nóvember
Þann 21. desember mun ég lenda á mínum fagurfornu slóðum...hahha...
Já ég er samsegt ekkert að fara að koma norður fyrr en eftir cirka mánuð og þa verður sko haft það gott... ja nautnaseggurinn ég ætla að láta fara svo vel um mig og vera dugleg að heimsækja fólk....
Annars bara að láta vita að ég sé á lífi og kannski líka pínku lítið að segja að þessi síða se ekki allveg að gera sig eða hvað?

er það kannski bara ég sem er svona blind og sé ekkert slúður... hahah..já það er kannski líka allveg inni í dæminu ;)
Heyrumst skvísurnar mínar
- Elfa Berglind
02nóvember
Þar sem ein af mínum uppáhaldsmyndum er Save the last dance langar mig til að koma með mynd af einu gaur í henni sem heitir Sean Patrick Tomas... þessi maður hefur eitt það krúttlegasta bros sem ég veit um... tala nú ekki um karakterinn sem gefur honum svo góðan sharma í myndinni...

Kveð að sinni
Elfa Berglind ;)
30október
Sælar skvís
langaði bara að þakka ykkur fyrir góða og skemmtilega helgi... alltaf gaman að hitta ykkur elskurnar mínar og hafa gaman með ykkur... það voru ekki auðveld skref sem tekin voru í hádeginu í dag þegar ég labbaði út í flugvélina og horfði niður á litla bæinn okkar hverfa bak við skýin... ég var farin aftur suður og hef ekki hugmynd um hvenær ég mun koma aftur...
hafiði það nú sem allra best krúttin mín og Sóley og Þrúður verið duglegar að læra
With love
Elfa Berglind
26október
ÉG ER ALLVEG AÐ KOMA TIL AKUREYRAR!! HHAHAA jebb ég á flug kl 11 í fyrramálið og ungfrú sóley ætlar að vera svo elskuleg að sækja mig á völlinn

ooo ég er búin að bíða svo lengi eftir því að koma norður og hitta fólkið og hafa gaman

ætli maður verði nú samt ekki að læra eitthvað líka svona fyrst að maður er nú í upplestrarfríi

en jæja best að fara að finna einhver föt til að fara með hmmm eitthvað lítið af fötum sem maður á

by the way þá held ég að ég sé búin að setja nýtt með með kalla fjölda í einu bloggi hahah...
síjú girls tomorrow

Elfa Berglind
25október
Góðan og blessaðan daginn. Er að reyna að læra og reyna að koma einhverjum fróðleik inn í hausinn á mér, en það gengur ekkert allt of vel. Var að uppgötva að það er bara rétt rúmlega mánuður fram af prófum, og er að farast úr stressi. 
Við stelpurnar fórum á burn partý um helgina(burn-orkudrykkurinn), þar sem var frítt áfengi þannig að maður gat drukkið eins mikið og manni listi, en mín var nú bara nokkuð þæg og lét sér bara nægja þrjú glös, þannig að þetta var bara frekar rólegt kvöld. En næstu helgi verður sko tekið á því. Þá er Halloween partý hjá Háskólanum og það verður nú skrautlegt. Ég og Þrúður vorum bara góðar á því í dag, fórum í Adam og Evu að leita okkur að einhverjum fylgihlutum, kanínueyrum eða einhverju skemmtilegu til að vera með á Halloween ballinu. fannst það fekar asnalegt að fara þangað inn þannig að við ákváðum að læðast bara inn svo enginn myndi taka eftir okkur en Þrúður byrjaði á því að detta í stiganum hehe (fyrirgefðu þrúður mín) þannig að það gat eiginlega ekki verið neitt meiri áberandi innkoma hehe. En fundum nú ekki neitt þar, þannig förinni var heitið í Ice in a bucced þar sem voru keypt þessi fínu kanínuheyru og dindill...við verðum sko lang flottastar hehe. Svo ætlar hún Hófý okkar að bjóða okkur stelpunum í mat á laugardaginn...hlakka mikið til.
þetta verður sko bara stelpurpartý..engir strákar leifðir, enda eru þeir líka algjör óþarfi og ekkert gagn af þeim, nema jú þegar það þarf að slá garðinn, því jú ekki gerir titrarinn það. En ætla að fara að halda áfram að læra.
Smá fróðleiksmoli í lokin:
Ef þú stundar kynlíf 3x í viku brennir þú um 10.000 kaloríum á einu ári við það eitt!
þetta var speki dagsins:)
Later
Sóley
23október
Hæhæ var að setja inn nokkrar myndir eða teikningar eftir mig. Maður verður nú að auglýsa sig aðeins. Ætli maður reyni ekki að teikna einhverjar karmínu eða mínervumyndir fyrir framhaldskólana ef einhver hefur áhuga á því. En hef ekkert verið mikið samt að teikna núna upp á síðkastið og verður örugglega ekkert mikið fram að jólum, víst maður er í klásus og hefur þannig nóg að gera. En allavena ekkert merkilegt að frétta. Hlakka til að sjá þig um næstu helgi Elfa.
Kveðja
Sóley J
22október
Haldiði að ég hafi ekki gripið einn japana sem á heima hérna í blokkinni minni glóðvolgann í kvöld við það að gæjast inn um pínku lítinn baðherbergisglugga þegar hann var að opna hurðina hjá sér.... jebb hann lifti sér upp á tærnar og snéri hausnum í átt að glugganum til þess að hann væri í réttri hæð á meðan hann var að reyna að opna útidyrahurðina hjá sér... hann var ekki lengi að koma sér inn þegar hann heyrði í mér labba upp stigann...hhahahahah... ekkert smá fyndið.. hann var allveg eins og kleina...
Annars þá var ég bara að koma heim og úr skólanum frá því að læra...jamm ég veit við erum öll glötuð að vera uppi í skóla á laugardagskveldi að læra til að verða 12 á miðnætti... eg skal samt segja að mer fannst það voða fínt hressir og skemmtilegir krakkar...
Kveð að sinni
Elfa Berglind